Helena

18.03.2006 14:45:30 / helena

Keypti mér bíl

Jæja þá er ég komin á nýjan bíl! Loksins...... :haha: Keypti mér VW Golf 2001 árgerð á útsölu hjá Heklu á miðvikudaginn. Fékk hann fyrir 550.000 kall, var nú bara mjög heppin með það, hann kostaði fyrir 990.000 og lítur bara mjög vel út. Þannig að ég get skroppið norður þegar ég vil  næsta vetur þ.e.a.s. ef ég mun hafa efni á því. :lol: En ég fer líklegast ekkert norður fyrr en um páskana næst. Það er svo mikið að gera í skólanum núna og allt of lítið eftir.... úfff.... ég á eftir að gera helling. Ég er farin að hlakka svo mikið til að komast norður. ;) Það er kannski mánuður þangað til. Við Atli erum búin að vera saman í tvö ár núna um helgina, tíminn líður ekkert smá hratt...... En ég ætla að fara að læra, er kannski að fara í próf á mánudaginn.

Sigga skrifaði
Va ! til hamiongjue með 23ja ára rmælið :* er dodið drukkin... ar a ðkoma úr því´kiuku part´+ui.... segti bara til haimgnju með af,lææðu ið elskunar... love igga ;*
Heiða Rut skrifaði
Til hamingju með nýja bílinn :) Ég held alveg að það sé rétti tíminn til að kaupa bíl núna þegar allt er á tilboði... Gangi þér vel í skólanum og við sjáumst bara hressar ;)
ég sjálf skrifaði
bíddu.... er það Sigríður Jörundardóttir þarna fyrir ofan sem sem sér ekki á lyklaborðið vegna mikillar drykkju???? ;) En takk samt fyrir aðra afmæliskveðju.... híhí...
Sigga skrifaði
Hahaha.... ég kenni sko Daniu alfarið um þetta!!! :D Þetta átti samt að vera 2ja ára afmælið hehe... ;) Bara gaman að þessu... ekki satt? ;)
gunna skrifaði
til hamingju med afmaelid.. og bílinn líka.. er svo ekki málid ad skella inn mynd af gripnum??:)
ég sjálf skrifaði
takk gunnsa... jú kannski geri ég það. eða sendi þér bara mynd ef þú vilt. svo þarftu að fara að koma heim svo við getum tekið rúnt saman. ;)
Sigga skrifaði
Gleðilegt sumar!!! :))) Sjáumst um helgina ;) Takk fyrir þrifin hehe... :D

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.