Helena

21.01.2007 00:38:18 / helena

...

                      

                                

                                     

                      

                                         

                         

                          


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.12.2006 16:30:07 / helena

Ég er að bilast!!!!

 

» 1 hafa sagt sína skoðun

02.12.2006 11:34:42 / helena

Heimsforeldri

Ég gerðist heimsforeldri í gær. :haha:

Og Atli líka.

Það er mjög góð tilfinning að vita að maður sé að hjálpa fátæka fólkinu í Afríku með því að borga bara 1000 kall á mánuði. Það er ekki mikill peningur fyrir mig en fullt fyrir þau.

Ég horfði á þáttinn í gær, Dag rauða nefsins og langaði bara að fara út til Afríku og hjálpa til.

þetta var svo sorglegt, vildi að ég gæti farið..... Kannski geri ég það einhvern daginn. Aldrei að vita.

Ert þú heimsforeldri??

 

Skilaði þremur verkefnum í vikunni, úfff..... fegin að vera búin, eða næstum því. Allavega er mesta stressið búið. Á bara eftir að skila tveimur prófverkefnum sem ég er eiginlega búin með, bara eftir smá teikning, handsaumur og pikka inn í tölvu. Svo tek ég þrjú próf og á eftir að skila tveimur möppum og einu verkefni á föstudag sem ég kláraði í gær. Djöfull er ég dugleg! :haha: Klára þetta allt 13. des...

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.11.2006 21:04:52 / helena

Okey Gunna.....

..... bara af því að þú varst að skjóta á mig í dag, þá varð ég að skrifa e-ð. Það er nú komið hálft ár síðan ég skrifaði e-ð hérna. Mér bara finnst það ekkert gaman og hef ekkert að segja. En kannski, bara kannski skal ég byrja að blogga eftir áramót. ;) Ég ætla ekkert að lofa..... En af því ég er byrjuð að skrifa e-ð hérna,  þá er ég bara að læra þessa dagana og þess vegna hef ég ekki heyrt í neinum í marga daga..... Ég er ekki búin að gleyma ykkur stelpur! Ég er bara á fullu að klára verkefni og er í skólanum til 22 á kvöldin. Svo er ég búin í prófum 13. des. Úff...  ég hlakka mikið til að fara í frí og fara norður.

En ertu ánægð núna Gunna????? hehe....:haha:

Jæja... ég þarf að halda áfram að læra.


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.05.2006 09:29:14 / helena

Mallorca 2

Forum til Palma i gaer, vorum ekki nema svona 10 minutur ad keyra thangad, okkur var sagt ad thad vaeri kannski svona halftimi. En kannski vorum vid svona fljot af thvi ad bilstjorinn keyrdi a 140! og for mest uppi 146! mer var sko ekki sama..... :(  En vid voldum alveg greinilega vitlausa daginn til ad fara ad versla, hitinn for uppi 30 gradur og svo aetludum vid ad sola okkur i dag en thad er bara skyjad. Er ad spa i ad draga Atla med mer i verslunarmidstodina i Palma af thvi ad thad a kannski ad rigna lika i dag. En eg keypti mer tvo pils, fullt af bolum og levis buxur og thetta kostadi ekki neitt.... :D Svo var eg otrulega glod thegar eg fann efnabud og hoppadi inn og aetladi aldeilis ad versla mer efni en nei... thetta var bara einhver rusl bud og eg fann ekki neitt.. :(

Vid erum samt ekkert ordin brun.... verdum ad fara ad gera e-d i thvi! :haha:

En hafid thad gott i kuldanum og vid sjaumst eftir nokkra daga 8)

Bless...... Helena


» 8 hafa sagt sína skoðun

21.05.2006 20:00:19 / helena

Mallorca

Hallo.....

Eg aetla bara ad hafa thetta stutt.

Lentum herna a midvikudaginn klukkan 19:30 i 27 stiga hita! Thad var mjog naes :)

Erum a finu hoteli, thad er bara mjog rolegt herna og ekkert vodalega mikid af folki en svo erum vid bara 10 min. korter ad labba yfir a Magaluf thar sem allt fjorid er. Vid erum bara buin ad vera ad sola okkur og labba um a Magaluf og skoda okkur um. Vid keyptum okkur gummibata og erum buin ad vera a theim a sjonum og thad er otrulega naes. :) Svo er sjorinn ekkert rosalega kaldur herna af thvi ad hotelid er vid svona litla vik og thad er svo grunnt, thannig ad thad er sko haegt ad snorkla herna! Vid aetlum svo ad kaupa okkur gleraugu og skoda allt sjavarlifid herna, thad er alveg fullt af fiskum herna i sjonum. :) A morgun aetlum vid til Palma og skoda allt thar og versla helling! Allavega aetla eg ad gera thad. Eg er samt buin ad finna mer sko herna sem kostudu bara 12 evrur og svo rosa flott bikini a 20 evrur. :)  Vid erum buin ad fa fint vedur allan timann, kannski 24-27 stiga hita. 

Skrifa kannski meira seinna....

Bae    Helena


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.05.2006 00:51:52 / helena

Einkunnir

Jæja já......

Þá er ég búin að fá einkunnirnar mínar og þær voru bara fínar :haha:.

Þær voru svona: 8, 8, 9, 9, 9, 9, 10, 10, og ég er nú bara nokkuð ánægð með þetta. 8) var sko fyrst ekkert ánægð með þessar 8-ur! 8| Ætlaði sko heldur betur að fá 9-ur en auðvitað er mjög gott að fá 8. :haha:

Ég fékk samt alveg 10, 9.7, 9.5, 9.4 og 9.3 á einhverjum prófunum, man ekki alveg hvað var hvað en ég get nú bara verið þokkalega ánægð með þetta.

Er búin að vera að þvælast með henni Hrönnsu í gær og dag og vinna og svo er það bara meiri vinna þangað til á þriðjudaginn og svo út á miðvikudaginn.

Sjáumst! ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.05.2006 23:36:02 / helena

Líbanir aka Toyota Karina bíl

Úffff...... ég er að fara í próf í fyrramáli og get ekki lært meira fyrir það. Ég er búin að lesa yfir allt og kann þetta bara allt saman. Mér finnst það allavega. Ég held að ég sé búin að læra í svona samtals kannski klukkutíma í dag. Samt finnst mér svo óþægilegt að vera bara að hangsa e-ð, en samt er það ótrúlega næs. :haha: Og það er eins gott að ég geti þá e-ð á þessu prófi á morgun. 8|

Í dag var ótrúlega gott veður hérna í Reykjavík. Ég ætlaði að vera rosalega dugleg að læra fyrir prófið en gat ekki hugsað mér að sitja inni í þessu veðri þannig að ég skrapp til ömmu og settist út á pall hjá henni. Pallurinn er á svo góðum stað og það var alveg logn og það varð gríðarlega heitt þarna, hitinn fór mest upp í 27.1 gráðu í skugganum! 8) en var svo mest í 23 gráðum. Ég gat nottlega ekkert lært í þessum hita og fór í staðinn að rífa upp alla fíflana í garðinum og lagaði til í runnabeðinu og það var nú bara fínt  að gera þetta í góða veðrinu og auðvitað var amma hæst ánægð með þetta. :haha:

Svo eru það bara tvö próf eftir morgundaginn semsagt á þriðjudaginn og miðvikudaginn og eftir það ætla ég að vinna nokkrar vaktir og þrífa íbúðina og pakka niður draslinu sem ég tek með mér norður og setja svo föt í ferðatösku og fljúga til Mallorca miðvikudaginn 17. maí! úff.... ég hlakka geggjað mikið til. 8) Það eru eiginlega bara 9 dagar þangað til..... Og svo er ég líka farin að hlakka svoooo mikið til að vera á Akureyri í sumar. :haha:

En jæja.... ég ætla að fara að reyna að gera e-ð, kannski lesa einu sinni yfir efnið og fara svo að sofa. ;)

Hér er samt smá skemmtilegt....

Lestu setningarnar og svo afturábak... :haha:

 

1. Líbanar kanna kranabíl

2. Ryksuguskyr

3. Fæðin, ef trú sína for atar, ratar ofan í súrt fenið æf

4. Líbanir aka Toyota Karina bíl

5. Mun amma Ragna raða ranga rammanum?

6. Lessur bíta gat í Brussel

7. Amma sá afa káfa af ákafa á Samma

8. á Gnarr Rangá?

9. Gíraffar í gíraffaríg

10. Inn úr rassi moki kúki komissar Rúnni

11. Alli Ragnar angar illa

12. Rut lögregla, alger göltur

13. Anna, bara sú hása, sá hús arabanna

14. Vá! Má merk skatan nota tonnatakskrem á máv?

15. Galsinna gíraffar í gannislag

16. Rassakappapappakassar

17. Anna má ýta Tý á Manna

18. Löggur banna bruggöl

19. Á rekís lá padda Páls í Kerá

20. Mun sá Arabi ná ló í nál? Nei, en lán í óláni, bara ásnum

21. Halla María, sú fallega gella Fúsa í Ramallah

 

 




» 9 hafa sagt sína skoðun

27.04.2006 23:35:06 / helena

Skrepp til útlanda eftir nokkra daga!

Jæja...... kominn tími til að skrifa e-ð hérna eða bara hætta því kannski...?

Mér finnst ekkert gaman að blogga nema kannski þegar ég hef e-ð skemmtilegt að segja eins og: ,,Við Atli erum að fara til MAJORCA 17. maí!!!!" Jeijjj....  :haha: Ég varð bara að monta mig smá. Djö...... hlakka ég til að fara í hitann og á ströndina og svona....... 8) En núna er ég bara að læra á fullu og klára verkefni, var í skólanum í dag frá 8 í morgun til 21:45 nákvæmlega. Það var ekki spes..... Og svo byrja prófin 2. maí og ég klára þau 10. maí, vinn í nokkra daga og fer svo í sólina. ;) Svo brunum við beint heim á Akureyri 31. maí eða 1. júní. Það verður líka nice....... :D

Nenni ekki meir, hef heldur ekkert annað skemmtilegt að segja...

Bless


» 7 hafa sagt sína skoðun

18.03.2006 14:45:30 / helena

Keypti mér bíl

Jæja þá er ég komin á nýjan bíl! Loksins...... :haha: Keypti mér VW Golf 2001 árgerð á útsölu hjá Heklu á miðvikudaginn. Fékk hann fyrir 550.000 kall, var nú bara mjög heppin með það, hann kostaði fyrir 990.000 og lítur bara mjög vel út. Þannig að ég get skroppið norður þegar ég vil  næsta vetur þ.e.a.s. ef ég mun hafa efni á því. :lol: En ég fer líklegast ekkert norður fyrr en um páskana næst. Það er svo mikið að gera í skólanum núna og allt of lítið eftir.... úfff.... ég á eftir að gera helling. Ég er farin að hlakka svo mikið til að komast norður. ;) Það er kannski mánuður þangað til. Við Atli erum búin að vera saman í tvö ár núna um helgina, tíminn líður ekkert smá hratt...... En ég ætla að fara að læra, er kannski að fara í próf á mánudaginn.


» 7 hafa sagt sína skoðun

02.03.2006 18:28:20 / helena

Nýtt útlit???

Jæja.... ég nenni aldrei að skrifa neitt hérna inn. Hef hvort eð er aldrei neitt að segja, ég er búin að vera að læra síðustu daga. Skilaði möppu í dag og einni á þriðjudaginn og var líka í prófi þá svo þarf ég að skila þriðju möppunni næsta þriðjudag. þannig að það gerist e-ð lítið spennandi hjá mér þessa dagana. En annars er ég að fara í litun á morgun og veit ekkert hvernig hárið verður litað svo verður það klippt á laugardaginn og ég veit ekki heldur hvernig það á að vera.8| Það verður nú e-ð spennandi en samt er ég pínu smeyk við þetta af því að ég fer örugglega að grenja ef ég fíla þetta ekki. nei nei ég segi svona.... hárið vex aftur. Kannski kominn tími til að ég prufi að gera e-ð nýtt.:lol: En það var Dunda sem plataði mig út í þetta allt saman en ég verð hármódel fyrir Geir á laugardaginn. Ég fæ allavega fría litun og klippingu, þannig að þetta er ágætt.:haha: Svo er bekkjarparty anaðkvöld og vinna um helgina. Við Dunda ætlum að reyna að fara norður föstudaginn 10. mars, þá á ég líka afmæli! Samt hlakka ég ekkert til, það er ekkert spennandi lengur að eiga afmæli. En Dunda er þetta ekki ennþá planið eða? Jæja ég ætla að fara að skoða bíla á netinu, það er víst hægt að fá bílalán á 0% vöxtum. Mig langar svoooooo í nýjan bíl....... ég ætla að skoða þetta aðeins.

» 14 hafa sagt sína skoðun

12.02.2006 20:52:28 / helena

LOST

Horfði á 9 þætti af LOST í gær og dag, þannig að ég er komin á þátt númer 12. Liggaligga lálá..... :haha: komst svo að því áðan að það var kannski ekki svo sniðugt af því að ég þarf þá að bíða í tvo mánuði eftir framhaldi. Ekki nema ég fái lánað framhaldið. Rétt upp hönd sem á fleiri þætti. Shit.... þetta var samt svo spennandi, sé ekki eftir að hafa horft á þetta. 8) Við pöntuðum mat frá Mekong í gær, mér fannst maturinn ekkert spes... Peng´s er alltaf best. ætla að fara að læra......

» 11 hafa sagt sína skoðun

03.02.2006 12:14:21 / helena

Ótrúlega góð að klippa hár....

Jæja gott fólk nú hef ég ákveðið að leggja sníðaskærin á hilluna og taka hárskærin fram. Nei grín.... En Dunda kom til mín í gærkvöldi í klippingu, já og það tókst bara svona vel hjá mér að klippa slitnu endana og gera hárið fínt. :D Vildi að ég hefði tekið fyrir og eftir mynd fyrir ykkur til að sýna ykkur hæfileika mína sem hárskeri. 8) Geri það næst. En ef einhver vill koma í klippingu til mín þá er það velkomið :D. meira að segja frítt! hehe....

En ég ætlaði alltaf að hætta að blogga hérna af því ég nenni því aldrei, hef heldur ekkert mikið að segja hérna. Geri alltaf það sama, alla daga... vakna, fer í sturtu, fer í skólann, kem heim, set í þvottavél, borða, horfi á sjónvarpið og fer að sofa.... Kemur líka fyrir að ég kíki í tölvuna og tek rúnt um netið, geri það örugglega einu sinni á dag, kannski tvisvar. Já svo stundum skrepp ég í vinnuna... svona aðra hverja helgi og læri stundum heima. Samt ekki oft.

En það er ýmislegt búið að gerast síðan ég kom heim úr jólafríinu... þrettándagleði Stebba var 6. janúar í Breiðholtinu, þar var mjög gaman, þurftum svo að borga 2700 kall í leigubíl heim! Atli var fullur og vildi borga... ég leyfði honum það að sjálfsögðu.. hehe...:haha: Svo var aftur party í Breiðholtinu, afmælisparty Silla og Stebba og kveðjuparty í leiðinni fyrir Stebba, hann er núna á Malaga að skemmta sér. Ekki leiðinlegt það.... En svo komu líka Pabbi, mamma og systur mínar eina helgina, ég skrapp með þeim í búðir og svona skemmtilegt. Mamma keypti handa okkur brauðrist, við erum búin að nota hana mikið síðan. ;) Svo sendu pabbi og mamma okkur heimasíma númerið er 5527716 ef einhver vill hringja og spjalla. :haha:

Já.... svo var afmælisparty hjá Ásdísi seinasta laugardag þar sem ég, Dunda, Ásta, Hildur og Ásdís spiluðum tvær umferðir í party og co og spjölluðum til að verða 04:00 minnir mig. Fengum líka þennan fína heita rétt hjá henni og svo banana, jarðaber og vínber sem við dýfðum oní þessa fínu marssósu sem hún og Teitur gerðu. Svo borðuðum við gulrætur og gúrku í massavís.... Jæja nú nenni ég ekki að bulla meira, þarf líka að fara í skólann. Er að fara í bókfærslu og missi af Ásdísi keppa, ætlaði að horfa á. Hún er að keppa í þessu þarna... æji hvað heitir það.. Hún er með einhverjum strákum í liði og þau búa til bíl sem á að leysa þrautir. Þetta er alltaf sýnt í sjónvarpinu á stöð eitt... En ég er farin, er að verða sein.


» 8 hafa sagt sína skoðun

21.12.2005 23:20:33 / helena

Gleðileg jól!

Jæja krakkar.... Ég ætla nú bara að segja ykkur það að ég nenni ekki að senda nein jólakort þessi jól. Sorrý.... Þannig að ég segi bara gleðileg jól og farsælt komandi ár. Takk fyrir liðið... :haha:

Og... ég komst áfram á næstu önn. (Ég bjóst nú alveg við því samt. Heheee...) 8)

Svo er Atli að koma norður á morgun, ég get varla beðið! Ég er búin að bíða eftir honum í næstum viku og er örugglega búin að hringja í hann nokkrum sinnum á dag. :S

En nú er ég farin að sofa og vakna hress í fyrramáli til að fara í bólusetningu fyrir hettusótt.... jamm þið sem vitið það ekki þá eiga þeir sem eru fæddir ´81-´85 að fara í svona sprautu. Atli þú líka!!!

Bless og gleðileg jól... :haha:


» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5